Polar Ammasak leggst að bryggju Hampiðjunnar í Neskaupstað. Ljósm Jón Einar Marteinsson

Grænlenska skipið Polar Ammasak kom til Neskaupstaðar í fyrrinótt til að taka veiðarfæri hjá Hampiðjunni en það mun halda til loðnuveiða á morgun. Grænlenska félagið Polar Pelagic festi nýverið kaup á skipinu en fyrir gerir það út uppsjávarskipið Polar Amaroq. Síldarvinnslan á 33% eignarhlut í Polar Pelagic. Skipið var keypt af danska útgerðarfélaginu Gitte Henning A/S og bar nafnið Gitte Henning.

Segja má að Polar Ammasak sé gamall kunningi því skipið var í eigu Polar Pelagic og bar nafnið Polar Amaroq á árinu 2013. Í lok þess árs festi Síldarvinnslan síðan kaup á því og fékk það þá nafnið Beitir. Skipið var í eigu Síldarvinnslunnar fram á árið 2015 en þá gekk það upp í kaupin á núverandi Beiti sem keyptur var af danska útgerðarfélaginu Gitte Henning og hafði einmitt borið það nafn. Þegar danska útgerðarfélagið hafði tekið við skipinu í skiptum fékk það nafnið Gitte Henning. Saga þessa skips er því orðin býsna skrautleg.

Polar Ammasak bar nafnið Beitir á árunum 2013-2015. Ljósm. Hákon Ernuson

Polar Ammasak var smíðað árið 1997 og er 2.148 brúttótonn að stærð. Skipið er búið tveimur aðalvélum og er hvor þeirra 3.260 hestöfl. Burðargetan er 2.200 tonn. Skipið hefur verið mikið endurnýjað á síðustu árum. Skipstjóri á Polar Ammasak verður Geir Zoëga. Geir segist vera afar ánægður með þessi skipakaup og spenntur fyrir komandi loðnuvertíð.

Polar Amaroq kemur til Neskaupstaðar í nótt og er ráðgert að bæði skipin veiði loðnu um hátíðar.

Hér skal þess getið að nafnið Polar Ammasak þýðir Heimskauta-Loðna en Polar Amaroq þýðir Heimskauta-Úlfur.