Grænlenska uppsjávarskipið Polar Ammassak. Ljósm. Smári Geirsson

Grænlenska uppsjávarskipið Polar Ammassak er á leið til Neskaupstaðar með fullfermi af kolmunna eða 1.800 tonn. Það kemur til hafnar á nótt og verður væntanlega landað úr því á morgun. Hér er um að ræða síðasta kolmunnafarminn sem berst til Síldarvinnslunnar í þessari veiðilotu. Heimasíðan ræddi við Guðmund Hallsson skipstjóra og spurði hvernig veiðin hefði gengið. „Við vorum að veiðum austan við Færeyjar og fengum aflann í fimm holum. Það fengust á bilinu 250 – 400 tonn í holi. Veiðin hefur minnkað verulega að undanförnu og það var lengi dregið eða allt upp í átján tíma. Þróunin var í reynd sú í túrnum að holin lengdust og aflinn minnkaði. Þetta er síðasti túr hjá okkur í bili en það á að geyma einhvern kvóta fram á haustið. Kolmunnaveiðin að undanförnu hefur gengið afar vel. Við höfum að mestu landað aflanum í Færeyjum og í Skagen í Danmörku. Það tók langan tíma að fara til Skagen auk þess sem þar var löndunarbið. Næst á dagskrá hjá okkur er makrílvertíðin og nú verður skipið undirbúið fyrir hana,“ segir Guðmundur.