Það ríkir gleði á skákhátíðinni í TasiilaqÞað ríkir gleði á skákhátíðinni í TasiilaqSíðustu ár hefur Polar Pelagic, hlutdeildarfélag Síldarvinnslunnar á Grænlandi, styrkt skákfélagið Hrókinn til að halda skákhátíð fyrir börn í Tasiilaq á Austur- Grænlandi. Hátíðin hefur unnið sér fastan sess í mannlífinu á staðnum og er ávallt mikið tilhlökkunarefni fyrir börnin. Útgerðarfélagið Polar Pelagic á og rekur uppsjávarskipið Polar Amaroq og á það einmitt heimahöfn í Tasiilaq. Allt samstarf um rekstur skipsins hefur gengið afar vel og öll samskipti við grænlenska meðeigendur verið hin ánægjulegustu.
 
Nú er hafinn undirbúningur fyrir skákhátíðina 2020 og verður hún jafnframt minningarhátíð um Gerdu Vilhelm, en Gerda var máttarstólpi barnanna í Tasiilaq þar sem hún rak bókabúð og kaffihús sem jafnframt var helsti griðastaður allra barna í bænum. Tasiiilaq komst í heimsfréttirnar á síðasta ári þegar danska sjónvarpið sýndi þátt sem bar heitið „Bærinn þar sem börnin hverfa.“ Í þættinum komu fram sláandi upplýsingar um félagslegt ástand á austurströnd Grænlands en Tasiilaq er einmitt höfuðstaður þess landshluta.
 
Kampakátir skákmennKampakátir skákmennSkákfélagið Hrókurinn hefur ávallt haft gleðina að leiðarljósi í starfi sínu á Grænlandi og hefur reynt eftir mætti að stuðla að auknum samskiptum Íslendinga og Grænlendinga á sem flestum sviðum. Þúsundir barna á Grænlandi hafa notið skákkennslu á vegum félagsins og fengið taflsett að gjöf, en í ferðum um landið hefur Hrókurinn tekið með sér tónlistarmenn, handverksfólk, sirkuslistamenn og fleiri sem hafa átt möguleika á að gleðja börnin. Hrókurinn hélt fyrsta alþjóðlega skákmótið í sögu Grænlands í Qaqortoq árið 2003 og á síðasta ári fóru Hróksliðar níu sinnum til Grænlands og þar voru haldnar tvær hátíðir undir merkjum Polar Pelagic. Öll grunnskólabörn í bæjunum sem voru heimsóttir tóku þátt í fjörinu og skein gleði úr hverju andliti.
 
Það er svo sannarlega gleðiefni fyrir Síldarvinnsluna að koma að jafn þörfu og jákvæðu verkefni sem skákhátíðin í Tasiilaq er. Öll samskipti við Grænlendinga í tengslum við útgerð Polar Amaroq hafa verið góð og kynni af grænlenskum meðeigendum og Grænlendingum í áhöfn skipsins verið ánægjuleg.