Síldarvinnslan er hátæknivætt sjávarútvegsfyrirtæki í fremstu röð. Slíkur rekstur stendur og fellur með þekkingu og frammistöðu starfsfólks. Það skiptir Síldarvinnsluna því miklu máli að hafa á að skipa góðu og ánægðu starfsfólki. Í því skyni er stefnt að því að bjóða upp á vinnuumhverfi sem einkennist af hvatningu, öryggi og góðum samskiptum. Fyrirtækið vill bjóða fólki upp á:
- vinnuumhverfi þar sem stjórnendur og starfsfólk vinnur að því í sameiningu að auka sífellt öryggi, velferð og árangur
- trygga vinnu og góða afkomu
- vinnu þar sem starfsfólk er hvatt til að gera sitt besta og efla stöðugt þekkingu sína og færni
- sveigjanleika og jafnvægi milli vinnu og einkalífs eins og frekast er unnt
- samskipti sem einkennast af samráði og virðingu
- jafnrétti til launa og tækifæra
Starfsmannastefnan er prentuð á íslensku, ensku og pólsku og verður hún aðgengileg öllum á starfsstöðvum fyrirtækisins innan skamms.