Gullver NS lauk ralli í gær. Veiðarfærin, sem notuð voru í rallinu, hífð í land. Ljósm. Ómar Bogason

Gullver NS kom til Seyðisfjarðar í gærmorgun að aflokinni þátttöku í togararalli. Heimasíðan ræddi við Hjálmar Ólaf Bjarnason skipstjóra og spurði hvernig hefði gengið. “Ég var einungis með skipið seinni hluta rallsins en Steinþór Hálfdanarson var með það í fyrri hlutanum. Í þessum seinni hluta tókum við 54 hol af 151 sem Gullver tók í heildina á norðaustursvæðinu. Þessi seinni hluti tók rúma fimm daga. Við byrjuðum á að fara út á Þórsbanka og í Rósagarðinn og síðan var farið upp á Breiðdalsgrunn, á Gula teppið og loks á Tangaflak, Gerpisflak og Glettinganesgrunn. Þetta gekk bara vel og veðrið slapp til. Við gátum verið að allan tímann. Afli var hins vegar ekki mikill eins og yfirleitt er í ralli á þessu svæði. Þetta er í fyrsta sinn sem ég er með skip í ralli og samstarfið við starfsmenn Hafrannsóknastofnunar var eins og best verður á kosið. Nú verða rallveiðarfærin frá Hafrannsóknastofnun tekin í land og við tökum okkar eigin um borð. Það er skítaspá framundan og ég á varla von á því að haldið verði til veiða fyrr en seinni part föstudags,” segir Hjálmar Ólafur.