Beitir NK.  Ljósm. Þorgeir BaldurssonSá áfangi náðist eftir loðnuvertíðina sl. vetur að Beitir NK varð reyklaust skip. Það hefði einhvern tímann þótt saga til næsta bæjar að enginn í áhöfn íslensks fiskiskips af þessari stærð reykti um borð en það hefur löngum viljað loða við íslenska sjómenn að þeir væru býsna háðir tóbakinu og fyrir marga þeirra dugði ekkert annað en filterslaus Camel.

 

Að sögn Hjörvars Hjálmarssonar skipstjóra á reykleysið sér nokkurn aðdraganda. Sá næst síðasti í áhöfninni sem hætti að reykja lagði sígaretturnar á hilluna fyrir um það bil einu ári og sá síðasti lét undan nokkrum þrýstingi og kvaddi tóbakið í lok loðnuvertíðarinnar. Hjörvar sagði að þegar nótaveiðar hófust á síðustu loðnuvertíð og bætt var við mönnum í áhöfnina hefði hinum nýráðnu verið gerð grein fyrir því að þeir væru að ráða sig á skip sem áformað væri að yrði reyklaust, þeir væru í reynd að ráða sig á reyklausan vinnustað. Þeir sem hlutu ráðningu og reyktu tilkynntu strax að þeir væru hættir ósómanum og við það var staðið.

 

Hjörvar segist vera stoltur af því að stýra nú reyklausu fleyi en tekur fram að ekki sé fylgst með því hvað menn aðhafist í landi. Hann segir að brýnt sé fyrir sjómönnum að þeir hugsi um heilsu sína og í því sambandi ættu reykingar að vera eitt hið fyrsta sem tekið væri á um borð í hverju skipi. Það sé ennþá alltof algengt að íslenskir sjómenn reyki og það sé brýnt fyrir sjómannastéttina að líta þannig á að fiskiskip geti alveg eins verið reyklausir vinnustaðir og vinnustaðir í landi.