Í morgun var verið að landa makríl úr Margréti EA. Vilhelm Þorsteinsson EA var kominn og beið löndunar.
Ljósm. Smári Geirsson

Í fiskiðjuveri Síldarvinnslunnar í Neskaupstað hefur verið samfelld makrílvinnsla að undanförnu og hefur makríllinn fengist innan íslenskrar lögsögu. Beitir NK kom aðfaranótt laugardags með 1.655 tonn og kom hann í kjölfar Barkar NK sem hafði verið með 1.500 tonn. Meðalstærð makrílsins í Beiti var vel yfir 500 gr. og var aflinn ýmist heilfrystur, hausskorinn eða flakaður. Í kjölfar Beitis kom síðan Margrét EA með rúmlega 1.100 tonn og gengur vel að vinna aflann. Þá er Vilhelm Þorsteinsson EA kominn til Neskaupstaðar með 1.445 tonn og ætti vinnsla úr honum að hefjast síðdegis.

Þegar löndun úr Vilhelm lýkur verða um 7.200 tonn af makríl komin á land í Neskaupstað á vertíðinni. Að auki hefur síld borist á land því stundum hefur makrílaflinn verið dálítið síldarblandaður.

Aflabrögð makrílskipanna í gær voru heldur döpur en í morgun bárust fréttir af Berki NK og Barða NK í Rósagarðinum og leit vel út með afla.