Makríl landað úr Berki NK í gær. Ljósm. Smári Geirsson

Í fiskiðjuveri Síldarvinnslunnar í Neskaupstað hefur verið samfelld makrílvinnsla að undanförnu. Lokið var við að landa 1.100 tonnum úr Vilhelm Þorsteinssyni EA sl. föstudag og þá var Barði NK kominn að landi með um 830 tonn. Aðfaranótt sunnudagsins hófst síðan vinnsla úr Berki NK sem var með 1.400 tonn. Í kvöld er síðan Beitir NK væntanlegur með 1.440 tonn. Veiði hefur verið nokkuð misjöfn síðustu dagana en skipin hafa best verið að fá um 250 tonn í holi. Eins og áður á vertíðinni hefur veiðin farið fram innan íslenskrar lögsögu og það er svo sannarlega jákvætt.

Heimasíðan ræddi við Geir Sigurpál Hlöðversson, rekstrarstjóra fiskiðjuversins, og spurði fyrst hvernig hráefni makríllinn væri. „Þetta er virkilega fallegur fiskur en oftast er töluverð áta í honum og það hefur áhrif á hvernig hann er unninn. Nú erum við að flaka og hausa en það er ekki heilfryst vegna átunnar. Hafa verður í huga að við erum ávallt að fá nýveiddan fisk og bátarnir kæla aflann um borð þannig að hráefnið er virkilega gott. Það er ekki hægt að segja annað en að vertíðin hafi gengið vel hingað til og við getum ekki kvartað undan neinu,“ segir Geir Sigurpáll.

Til viðbótar skal þess getið að Hákon EA er að landa 640 tonnum af frystum hausuðum makríl í frystigeymslur Síldarvinnslunnar í dag.