Börkur NK. Ljósm. Hákon ErnusonBörkur NK. Ljósm. Hákon ErnusonÞrátt fyrir að mikill tími fari í leit hjá skipunum þá er makrílvinnsla samfelld þessa sólarhringana í fiskiðjuveri Síldarvinnslunnar í Neskaupstað. Lokið var við að landa 765 tonnum úr Beiti NK í morgun og þá hófst löndun úr Bjarna Ólafssyni AK sem kominn var til löndunar með 440 tonn. Vinnsla úr Bjarna Ólafssyni lýkur í kvöld en þá mun löndun hefjast úr Berki NK sem er á landleið með 950 tonn.
 
Beitir og Bjarni Ólafsson fengu sinn afla út af Austfjörðum en Börkur var að veiðum í Smugunni um 270 mílur frá Norðfjarðarhorni. 
 
Þá hafa tvö vinnsluskip landað makríl í frystigeymslur Síldarvinnslunnar í gær og í dag.  Vilhelm Þorsteinsson EA landaði 400 tonnum og Hákon EA er að landa 730 tonnum. Á sama tíma er verið að skipa út 4500 tonnum af afurðum úr frystigeymslunum.