Síldarhol hjá Beiti NK. Ljósm. Helgi Freyr Ólason

Lokið var við að landa 390 tonnum af síld úr Bjarna Ólafssyni AK í Neskaupstað síðdegis í gær. Þá var röðin komin að Berki NK sem kominn var með 1.400 tonn. Heimasíðan ræddi við Hjörvar Hjálmarsson, skipstjóra á Berki, og spurði fyrst hvar aflinn hefði fengist. „Við byrjuðum á að taka eitt hol í Norðfjarðardýpinu. Þar fékkst ágæt síld en okkur þótti hún heldur smá svo við færðum okkur norðar. Við tókum síðan megnið af aflanum á Glettinganesflakinu. Þar fékkst síld sem var 360-370 gr. meðalþyngd og hentar afar vel til vinnslu. Það var töluvert af síld að sjá þarna á Glettinganesflakinu og einnig á Héraðsflóadýpinu. Það var bara býsna líflegt á þessum slóðum. Mér líst ágætlega á upphaf þessarar síldarvertíðar, hún fer vel af stað,“ segir Hjörvar.

Í gærmorgun var lokið við að vinna úr Beiti NK en hann kom með rúmlega 200 tonn af makríl og tæplega 500 tonn af síld. Beitir heldur á ný til síldveiða í dag.

Vinnsla á síldinni gengur afar vel í fiskiðjuveri Síldarvinnslunnar. Jón Gunnar Sigurjónsson yfirverkstjóri segir að þar séu unnin 700-800 tonn á sólarhring. „Við erum að fá mjög góða síld og erum að upplifa bullandi síldarvertíð. Afköstin fara eftir því hvað er verið að vinna. Stundum heilfrystum við og stundum er flakað og stundum er hvor tveggja gert. Þetta fer eftir því hvað markaðurinn vill. Síldarmarkaðir eru góðir núna. Það er víða öskrað á síld,“ segir Jón Gunnar.