Þriðja árið í röð getur starfsfólk Síldarvinnslunnar gert svonefndan samgöngusamning við fyrirtækið. Slíkur samningur mun gilda frá 1. júní til 31. október. Samningurinn felur í sér að viðkomandi starfsmaður fer gangandi eða hjólandi í vinnuna að minnsta kosti þrjá daga í viku og fær styrk að upphæð 6.000 kr. og er sá samgöngustyrkur undanþeginn skatti.

Hákon Ernuson, starfsmannastjóri Síldarvinnslunnar, segir að samgöngusamningur feli bæði í sér ávinning fyrir viðkomandi starfsmann og fyrirtækið. Starfsmennirnir eigi kost á því að bæta heilsuna með því að hreyfa sig meira auk þess samningurinn er hagkvæmur fjárhagslega. Fyrirtækið mun njóta heilbrigðara starfsfólks og með minnkandi bílaumferð verður minni þörf fyrir bílastæði við vinnustaðina. Þá má ekki gleyma því að mati Hákonar að samningurinn stuðlar að bættu umhverfi.

Starfsmenn sem vilja gera samgöngusamning við fyrirtækið skulu snúa sér til stjórnanda á viðkomandi vinnustað eða til starfsmannastjóra. Því miður gefst sjómönnum ekki kostur á að gera samgöngusamning vegna eðlis starfa þeirra en þeir eru eindregið hvattir til að hreyfa sig og vinna að bættri heilsu eins og frekast er kostur.