Gunnþór B. Ingvason forstjóri Síldarvinnslunnar og Arnar Bjarni Eiríksson forstjóri Landstólpa við undirritun samningsins. Ljósm. Sigurður Ingvi Gunnþórsson

Eins og frá hefur verið greint standa fyrir dyrum miklar framkvæmdir við fiskimjölsverksmiðju Síldarvinnslunnar í Neskaupstað. Ráðgert er að stækka verksmiðjuna úr 1400 tonnum í 2380 tonn og að auki er áformað að auka afköst hrognavinnslunnar um helming. Eftir stækkunina verður í fiskimjölsverksmiðjunni eining eða lítil verksmiðja sem hentar sérstaklega á þeim tímum þegar einungis er unninn afskurður frá manneldisvinnslunni.

 Þegar eru hafnar undirbúningsframkvæmdir á verksmiðjusvæðinu og sl. miðvikudag var undirritaður samningur við Landstólpa ehf. um kaup og uppsetningu á stálgrindahúsum vegna stækkunarinnar. Samningurinn var undirritaður af Arnari Bjarna Eiríkssyni forstjóra Landstólpa og Gunnþóri B. Ingvasyni forstjóra Síldarvinnslunnar. Annars vegar er um að ræða 2000 fermetra verksmiðjuhús og hins vegar löndunarhús vegna hrognavinnslunnar sem stækkað verður um 300 fermetra. Samkvæmt samningnum skal lokið við að reisa húsin 1. nóvember nk. 

Ljóst er að miklar framkvæmdir verða á verksmiðjusvæðinu í sumar. Framkvæmdir við verksmiðjuna verða í tveimur áföngum. Í fyrri áfanganum verður húsið reist og komið upp litlu verksmiðjueinunginni, en í síðari áfanganum verður komið upp búnaði sem eykur afköstin.   

Hin auknu afköst munu gera verksmiðjunni kleift að vinna stóra farma á tiltölulega skömmum tíma og litla verksmiðjan verður með sveigjanlegum afköstum þannig að unnt verður að vinna allt hráefni sem ferskast. Þá mun orkunýting batna mikið með þessu fyrirkomulagi.