
Í gær var undirritaður samningur við vélsmiðjuna Héðin um smíði á 380 tonna fiskimjölsverksmiðju sem sett verður upp í Neskaupstað. Nýlega var greint frá því að Síldarvinnslan hygðist stækka fiskimjölsverksmiðju sína í Neskaupstað úr 1400 tonna sólarhringsafköstum í 2000 tonna afköst og jafnframt yrði komið upp lítilli verksmiðjueiningu sem gæti afkastað allt að 380 tonnum á sólarhring en umræddur samningur fjallar einmitt um þá einingu. Heildarafköstin verða þannig 2380 tonn á sólarhring eftir þessar framkvæmdir.
Samningurinn við Héðin um smíði á litlu verksmiðjueinunginni er upp á 1,7 milljarð króna og samkvæmt honum er gert ráð fyrir að verksmiðjan verði afhent í maímánuði 2022.
Tilgangurinn með því að koma upp lítilli verksmiðjueiningu er að auka hagkvæmni til dæmis með því að spara orku og gert er ráð fyrir að á síldar- og makrílvertíð verði einungis litla verksmiðjan starfrækt enda fer megnið af síldinni og makrílnum til manneldisvinnslu. Á smærri loðnuvertíðum ætti einnig að vera nægilegt að reka einungis litlu verksmiðjueininguna. Sem dæmi má nefna að á yfirstandandi vertíð voru 9700 tonn af loðnu fryst í fiskiðjuveri Síldarvinnslunnar en einungis 120 tonn fóru til vinnslu í fiskimjölsverksmiðjunni. Vinnsla á kolmunna mun hins vegar fara fram í stóru verksmiðjunni sem verður þá rekin með hámarksafköstum.
Síldarvinnslan hefur um nokkurra ára skeið unnið að þróunarverkefnum með MATÍS þar sem skoðaðir eru möguleikar á að framleiða verðmætara prótein og lýsi úr því hráefni sem kemur til vinnslu í fiskimjölsverksmiðjunni. Það er ekki síst aukinn ferskleiki hráefnisins sem gerir það kleift að auka verðmætin. Samhliða þeim framkvæmdum sem áður er lýst hefur verið unnið að uppsetningu á lítilli tilraunaverksmiðju með spreyþurrkun og ýmsum öðrum búnaði með möguleika á annars konar framleiðslu en hefð er fyrir.