Börkur NK að veiðum. Ljósm. Björn Steinbekk

Börkur NK er á leið til Neskaupstaðar með 1.400 tonn af íslenskri sumargotssíld sem veiddist vestur af landinu. Skipið er væntanlegt til hafnar í kvöld og þá mun vinnsla aflans hefjast í fiskiðjuveri Síldarvinnslunnar. Heimasíðan ræddi við Ólaf Gunnar Guðnason stýrimann í morgun en þá var Börkur staddur út af Hraunhafnartanga á Melrakkasléttu. Ólafur Gunnar var fyrst spurður hvernig síldin væri. „Það er fallegasta síld, svipuð og verið hefur. Síldin er 290 – 310 grömm. Við vorum að veiða norðarlega á Látragrunnskantinum, en það er norðar en veitt hefur verið undanfarin ár vestur af landinu. Aflinn fékkst í fjórum holum. Þetta voru þrjú um 400 tonna hol og eitt 150 tonna. Veiðin gekk bara ljómandi vel,“ segir Ólafur Gunnar.

Að afla Barkar í þessari veiðiferð meðtöldum hafa Síldarvinnsluskipin veitt hátt í 15.000 tonn af íslenskri sumargotssíld á árinu. Megnið af síldinni hefur veiðst vestur af landinu en eins veiddist íslensk sumargotssíld með norsk-íslenskri síld austur af landinu.