Aðalbókari hefur yfirumsjón með  fjárhags- og viðskiptabókhaldi félagsins og tryggir réttmæti fjárhagsupplýsinga. Jafnframt kemur aðalbókari að gerð ársreiknings, árshlutareikninga og annarra reglubundinna uppgjöra móðurfélagsins og samstæðunnar í samvinnu við fjármálastjóra. Aðalbókari tekur þátt í greiningu fjárhagsupplýsinga og undirbúningi upplýsinga fyrir stjórn og framkvæmdastjóra.  

Menntun og hæfni: 

  • Háskólamenntun á sviði viðskiptafræði.  Meistaragráða (MACC) í reikningshaldi og endurskoðun er kostur 
  • Reynsla af uppgjörsvinnu og ársreikningsgerð 
  • Reynsla af færslu og umsjón bókhalds 
  • Þekking á Navision, Excel og PowerBI 
  • Góð íslensku- og enskukunnátta 
  • Færni í mannlegum samskiptum og teymisvinnu  

Vinnustöð aðalbókara er á skrifstofu félagsins í Neskaupstað. Ef nýr aðalbókari býr ekki þegar á svæðinu mun Síldarvinnslan aðstoða við búferlaflutninga, þ.m.t. atvinnuleit maka.   

Umsækjendur eru beðnir um að sækja um starfið í gegnum Alfreð (www.alfred.is). Umsóknarfrestur er til og með 1. nóvember 2020.  

Nánari upplýsingar um starfið gefur Hákon Ernuson, starfsmannastjóri ().