- Ársreikningi skilað á réttum tíma.
- Lánshæfisflokkur 1-3.
- Rekstrarhagnaður jákvæður þrjú ár í röð.
- Ársniðurstaða jákvæð þrjú ár í röð
- Eiginfjárhlutfall 20% eða meira þrjú rekstrarár í röð.
- Framkvæmdastjóri skráður í fyrirtækjaskrá RSK.
- Rekstrartekjur að lágmarki 50 milljónir kr. 2017.
- Fyrirtækið virkt samkvæmt skilgreiningu Creditinfo.
- Eignir yfir 100 milljónir kr. árið 2017, 90 milljónir 2016 og 80 milljónir 2015.
Þegar mat á fyrirtækjum fer fram er þeim skipt í þrjá stærðarflokka: Lítil fyrirtæki með eignir sem nema 100-200 milljónir króna, meðalstór fyrirtæki með eignir sem nema 200-1.000 milljónir króna og stór fyrirtæki með eignir sem nema 1.000 milljónum króna eða meira.
Alls eru 235 stór fyrirtæki á lista Creditinfo yfir framúrskarandi fyrirtæki og í þeim flokki er Síldarvinnslan í tuttugasta sæti. Eignir fyrirtækisins eru 51.575.440 þúsundir kr. og eigið fé 33.009.877 þúsundir kr. eða 64%. Þá kemur fram að Síldarvinnslan er fimmtándi hæsti greiðandi tekju- og eignaskatts á landinu en alls greiddi fyrirtækið í slíka skatta 617.018 þúsundir kr. á árinu 2017.