Síldarvinnslan í Neskaupstað og BioMar Group hafa undirritað viljayfirlýsingu um byggingu fóðurverksmiðju á Íslandi. Stefnt er að því að byggja umhverfisvæna verksmiðja; kolefnisspor lágmarkað með notkun umhverfisvænnar orku. Síldarvinnslan hefur frá árinu 2002 verið meirihlutaeigandi í fóðurverksmiðjunni Laxá á Akureyri en Laxá er stærsti framleiðandi fiskafóðurs á Íslandi.


Með verkefninu skapast tækifæri til að nýta framleiðslu Síldarvinnslunnar til fóðurgerðar með þeim aðferðum sem BioMar hefur þróað með ítarlegum rannsóknum. Framleiðsla BioMar er þekkt hér á landi en Laxá hefur flutt inn og dreift framleiðsluvörum BioMar um nokkurra ára skeið.

Gunnþór Ingvason, forstjóri Síldarvinnslunnar fagnar samstarfinu við BioMar. „Við höfum í lengri tíma átt í góðu sambandi við BioMar og þetta samstarfsverkefni fellur vel að starfsemi beggja fyrirtækja. Bæði fyrirtækin leggja mikla áherslu á að hafa sjálfbærni að leiðarljósi og reynsla okkar á sviði framleiðslu fiskimjöls og lýsis með sjálbærum hætti mun nýtast vel við framleiðslu á hágæðafóðri fyrir íslenskt fiskeldi og fóðrið verður samkeppnisfært við erlent fóður. Þetta er mikilvægur áfangi í aukinni verðmætasköpun á okkar framleiðsluvörum“ segir Gunnþór.


Stefnt er að því að ljúka viðskiptaáætlunum og taka endanlega ákvörðun um verkefnið fyrir lok árs 2022 og framhaldinu verði hafist handa við byggingu verksmiðjunnar.


Carlos Diaz, forstjóri BioMar Group, tekur undir með Gunnþóri. „Það er mikilvægur hluti okkar stefnu að vaxa og nýta tækifæri sem bjóðast með sjálfbærni að leiðarljósi. Samstarf við Síldarvinnsluna er frábært tækifæri fyrir okkur til að vaxa með íslenska markaðnum á sjálfbæran hátt,“ segir Carlos Diaz.

Fiskeldi á Íslandi hefur tífaldast frá árinu 2010 og er stefnt að frekari vexti greinarinnar. Vöxturinn hefur fyrst og fremst verið í sjókvíaeldi en fyrirhuguð er mikil uppbygging í landeldi sem mun nýta hagstæðar umhverfisaðstæður. Ísland er kjörin staðsetning fyrir fóðurframleiðslu þar sem gott hráefni er til staðar og unnt að framleiða með hreinni grænni orku. Á sama tíma mun framleiðslan draga mjög úr þörfinni á að flytja fóður til landsins. Þetta verkefni mun hafa mjög jákvæð umhverfisleg áhrif. Bygging fóðurverksmiðju er mikilvægur þáttur í að auka samkeppnishæfni Íslands og eykur þekkingu okkar á undirstöðu fiskeldis sem byggir á góðu fóðri.

Fiskimjölsverksmiðja Síldarvinnslunnar í Neskaupstað

Nánari upplýsingar veitir:
Gunnþór B. Ingvason, forstjóri Síldarvinnslunnar hf.
Netfang:
Sími: 470-7000