Kristín Guðmundsdóttir með Síldarvinnslupeysuna.
Ljósm. Smári Geirsson

Kristín Guðmundsdóttir í Neskaupstað er áhugasöm um prjónaskap og afkastamikil prjónakona. Hún er sífellt að velta fyrir sér nýjum verkefnum og munstrum og sannast sagna láta hugmyndirnar ekki standa á sér. Eitt nýjasta verkefni hennar er Síldarvinnslupeysa sem hún prjónaði um síðastliðna páska. Krístín segir að það hafi verið skemmtilegt og ögrandi verkefni að prjóna peysuna: „Mér datt í hug snemma á árinu að prjóna peysu með SVN-lógóinu. Ég hélt að slík peysa gæti orðið flott. Ég settist síðan niður um páskana og prjónaði peysuna en það tók mig um vikutíma. Þetta var snúið verkefni og það var erfitt að telja út en ég fann forrit á netinu sem ég gat notað til að hjálpa til við það. Í reyndinni var það ætlunin að ljúka ekki við peysuna fyrr en síðar á árinu en ég er víst þannig að þegar ég byrja á einhverju þá klára ég það. Mér fannst vel viðeigandi að prjóna Síldarvinnslupeysu. Síldarvinnslan er gott fyrirtæki og samfélagslega mikilvægt og að auki finnst mér merki eða lógó þess vera býsna flott,“ segir Kristín.

Kristín færði Síldarvinnslunni peysuna að gjöf og forstjórinn var ekki lengi að skella sér í hana. Kann Síldarvinnslan Kristínu bestu þakkir fyrir peysuna.

Forstjóri Síldarvinnslunnar, Gunnþór B. Ingvason, kominn í peysuna.
Ljósm. Smári Geirsson