Vinnsla á síld gengur vel í fiskiðjuveri Síldarvinnslunnar í Neskaupstað. Lokið var við að landa 1.100 tonnum úr Beiti NK í gær og í morgun kom Börkur NK með 1.300 tonn. Þegar vinnslu á síldinni úr Beiti lauk í gær var hafist handa við að þrífa fiskiðjuverið hátt og lágt eins og gera þarf reglulega. Heimasíðan ræddi við Hálfdan Hálfdanarson, skipstjóra á Berki, í morgun og spurði fyrst hvort síldin héldi sig alltaf á svipuðum slóðum. „Já, hún gerir það. Veiðin hefur farið fram út af Héraðsflóanum og þar heldur hún sig. Það er engin breyting á því. Aflann í þessari veiðiferð fengum við í fimm holum. Það fiskaðist vel en við þurftum að gera hlé á veiðunum í eina 20 tíma vegna brælu. Nú er Börkur búinn að veiða rúm 6.000 tonn á vertíðinni og það hefur verið afar þægilegt að ná í þetta. Það er stutt að fara og yfirleitt nóg af síld,“ segir Hálfdan.
Fréttaleit
Nýjustu fréttir
- Graðýsa og stórþorskur
- Síldarvinnslan að taka fræðslumálin föstum tökum í samvinnu við Austurbrú
- Verkstjóri í fiskiðjuver SVN í Neskaupstað
- Rífandi kolmunnaveiði á gráa svæðinu
- Heldur tryggð við Raufarhöfn
- Samfélagsspor Síldarvinnslunnar jókst enn árið 2023
- Gott fiskirí hjá togurunum
- Tæknidagur fjölskyldunnar var fjölsóttur og tókst vel