Ísfisktogararnir Vestmannaey VE og Bergey VE lönduðu fullvermi í Vestmannaeyjum í gær. Heimasíðan ræddi við skipstjórana í morgun en þá voru bæði skipin að veiðum á Mýragrunni. Birgir Þór Sverrisson, skipstjóri á Vestmannaey, sagði að síðasti túr hefði gengið mjög vel. „Við fylltum skipið á tveimur sólarhringum en aflinn var aðallega ýsa og ufsi. Þetta var stór og fallegur fiskur. Við byrjuðum að veiða á Mýragrunni, færðum okkur um tíma austur á Stokksnesgrunn og síðan aftur á Mýragrunn þar sem var hörkuveiði. Haldið var til veiða á ný strax að löndun lokinni,“ segir Birgir.
Ragnar Waage Pálmason, skipstjóri á Bergey, sagði einnig að tvo sólarhringa hefði tekið að fylla skipið í síðustu veiðiferð. „Við byrjuðum á Stokksnesgrunni í ýsu og ufsa og þar var fínasta veiði. Við veiddum einnig um tíma á Reynisdýpinu en þar fékkst karfi og ufsi. Þar vorum við í skrapveiði. Nú erum við á Mýragrunninu og erum að fá ýsu, en hún heldur sig helst þar sem síldin hrygnir. Ýsan sækir mjög í síldarhrognin. Stundum höfum við verið að fá ýsu á Péturseynni í júní og júlí en nú heldur hún sig ekki þar,“ segir Ragnar.