Kolmunnaskipin sem lágu í Norðfjarðarhöfn héldu til veiða í gær þegar niðurstöður skimunar áhafna þeirra fyrir Covid 19 lágu fyrir. Niðurstöðurnar voru neikvæðar í öllum tilvikum og því ekkert því til fyrirstöðu að láta úr höfn. Skipin munu hefja veiðar á gráa svæðinu suður af Færeyjum en þangað eru um 350 mílur frá Neskaupstað. Í dag höfðu engar fréttir borist um kolmunnaveiði á gráa svæðinu.
Gullver NS landaði 104 tonnum af blönduðum afla á Seyðisfirði í gærmorgun. Gert er ráð fyrir að hann haldi á ný til veiða klukkan átta í kvöld og verði á miðunum yfir páskahátíðina.
Skip Bergs-Hugins í Vestmannaeyjum, Bergey VE og Vestmannaey VE, munu verða í landi yfir páskana. Bergey landaði í Eyjum í gærkvöldi og Vestmannaey er að landa í dag. Ráðgert er að bæði skipin haldi til veiða á annan í páskum.