Síldarvinnslan leitar eftir starfsmanni á skrifstofu félagsins í Neskaupstað. Starfið felst í símsvörun, umsjón með eldhúsi og almennum skrifstofustörfum. Almenn tölvuþekking er skilyrði s.s. Word, Exel. Vinnutíminn er frá kl.08:00 til kl.16:00. Áhugasamir sendi inn ferilskrá á netfangið hakon (hjá) svn.is. Umsóknarfrestur er til 18.apríl.
Aðrar hæfniskröfur sem verða metnar:
- Menntun
- Reynsla sem nýtist í starfi
- Tungumálakunnátta
- Þekking á Navision kostur
- Hæfni í mannlegum samskiptum
Nánari upplýsingar veitir Hákon Ernuson í s.470-7050, starfsmannastjóri Síldarvinnslunnar hf.