Síldarvinnslan leitar eftir starfsmanni á skrifstofu félagsins í Neskaupstað. Starfið felst í almennum skrifstofu- og bókhaldsstörfum. Almenn tölvuþekking er skilyrði. Vinnutíminn er frá kl.08:00 til kl.16:00. Áhugasamir sendi inn ferilskrá á netfangið . Umsóknarfrestur er til 20. desember.
Aðrar hæfniskröfur sem verða metnar:
- Menntun
- Reynsla
- Tungumálakunnátta
- Bókhaldskunnátta
- Þekking á Navision
- Hæfni í mannlegum samskiptum
Nánari upplýsingar veitir Hákon Ernuson í s.470-7050, starfsmannastjóri Síldarvinnslunnar hf.