Beitir NK á landleið út af Papey fyrr í dag.  Ljósm. Þorgeir Baldursson

Hálfdán Hálfdánarson skipstjóri á Beiti segir að torfurnar sem loðnuflotinn veiðir nú úr út af Breiðafirði séu „sterkustu torfur vertíðarinnar“.  Fram til þessa hefur loðnan verið tiltölulega dreifð en þegar Beitir var á miðunum í fyrradag voru torfurnar úr vesturgöngunni bæði stórar og þéttar.

Þegar rætt var við Hálfdán var Beitir á siglingu til heimahafnar í Neskaupstað með fullfermi, 2.100 tonn.

Hálfdán segist reikna með að Beitir eigi einungis einn túr eftir að lokinni yfirstandandi veiðiferð og það sé sérkennilegt að ljúka vertíðinni í mokveiði en svona gerist gjarnan þegar vesturgöngurnar koma undir vertíðarlok.