Talið frá vinstri: Ingi Jóhann Guðmundsson, Guðmundur R.
Gíslason, Arna Bryndís Baldvins McClure, Gunnþór B. Ingvason
framkvæmdastjóri, Anna Guðmundsdóttir, Þorsteinn Már Baldvinsson,
Björk Þórarinsdóttir og Halldór Jónasson. Ljósm. Smári GeirssonÁ aðalfundi Síldarvinnslunnar hf., sem haldinn var í gær, var stjórn félagsins endurkjörin.
Stjórnin er þannig skipuð:
Anna Guðmundsdóttir
Björk Þórarinsdóttir
Guðmundur Rafnkell Gíslason
Ingi Jóhann Guðmundsson
Þorsteinn Már Baldvinsson
Varamenn:
Arna Bryndís Baldvins McClure
Halldór Jónasson
Á stjórnarfundi að loknum aðalfundinum var Þorsteinn Már Baldvinsson kjörinn formaður stjórnarinnar. Þorsteinn hefur verið stjórnarformaður frá árinu 2003 en hann hefur átt sæti í stjórn félagsins frá árinu 2001.