Beitir NK á leið á miðin. Ljósm. Helgi Freyr Ólason

Börkur NK kom til Neskaupstaðar aðfaranótt laugardags með 1244 tonn af síld sem fékkst vestur af landinu. Vinnslu aflans lauk aðfaranótt mánudags og segir Geir Sigurpáll Hlöðversson, rekstrarstjóri fiskiðjuvers Síldarvinnslunnar, að síldin hafi verið mjög góð og hentað í alla staði vel til vinnslu.

Beitir NK kom síðan til Neskaupstaðar síðdegis í gær með 1370 tonn af síld og ræddi heimasíðan við Tómas Kárason skipstjóra. „ Við enduðum á að veiða 80 sjómílur vestur af Malarrifi. Við vorum þrjá daga á veiðum og þetta fór rólega af stað. Síðan leituðum við og fundum stórar og fallegar torfur þarna utan við kantinn og þá fór að ganga betur. Aflann fengum við í fimm holum og í síðasta holinu voru tæp 500 tonn. Þetta er sama góða síldin og verið hefur þannig að við höfum ekki yfir neinu að kvarta,“ segir Tómas.