Norska skipið Harald Johan að landa kolmunna á Seyðisfirði í morgun. Ljósm. Ómar Bogason

Nú er norska kolmunnaskipið Harald Johan að landa 1.500 tonnum af kolmunna á Seyðisfirði og Börkur NK kemur með fullfermi, rúm 3.200 tonn, til Neskaupstaðar í fyrramálið. Heimasíðan ræddi við Hjörvar Hjálmarsson, skipstjóra á Berki, en þá átti skipið 280 mílur ófarnar til hafnar. Kolmunninn veiðist vestur af Írlandi og er um 750 mílna sigling á miðin frá Austfjörðum. Hjörvar var beðinn um að lýsa veiðunum þarna. „Þarna er mikið af fiski og veiðarnar eru stórvarasamar. Við fengum aflann í 10 holum og það var alltaf stutt dregið eða frá 30 mínútum og upp í tvo tíma. Aflinn í hverju holi var frá 570 tonnum og niður í 400 tonn. Við reyndum að fá um 400 tonn í hverju holi en það gekk ekki alltaf. Við lentum í tjóni vegna þess að of mikið reyndi á veiðarfærin. Þarna eru allt aðrar aðstæður en til dæmis í færeysku lögsögunni. Í færeysku lögsögunni er miklu lengur dregið, þar er oft híft tvisvar á dag en svo gerist það einnig að dregið er í 20 – 30 tíma. Á þessu svæði vestur af Írlandi er einfaldlega meiri fiskur á ferðinni og hægt að fá góðan afla á skömmum tíma, jafnvel svo góðan að veiðarfærunum er ofgert,“ segir Hjörvar.

Beitir NK er einnig að kolmunnaveiðum vestur af Írlandi. Hann er kominn með góðan afla en bíður nú eftir að bræla gangi niður svo unnt sé að halda veiðum áfram. Gert er ráð fyrir að veðrið batni á morgun.