Barði NK að makrílveiðum í Smugunni. Ljósm. Björn Steinbekk

Barði NK kom til Neskaupstaðar í gærmorgun með tæp 1.400 tonn af makríl sem veiddist í Smugunni. Nú er verið að vinna aflann í fiskiðjuveri Síldarvinnslunnar og er fiskurinn ýmist heilfrystur eða hausskorinn. Heimasíðan ræddi við Þorkel Pétursson, skipstjóra á Barða, og spurði fyrst hvar veitt hefði verið. „Undir lokin vorum við að veiðum mjög norðarlega í Smugunni og það voru 520 mílur til Neskaupstaðar þegar lagt var af stað í land. Skipin eru nú að veiða enn norðar. Það hefur verið rosaleg ferð á fiskinum. Hann var á norðurleið þegar við vorum úti en nú skilst mér að hann stefni í austur í átt að norsku línunni. Veiðin hefur verið misjöfn, stundum þarf að leita að fiskinum og stundum er mok. Þegar við vorum að klára á miðunum hófst alger mokveiði. Börkur fékk til dæmis 550 tonna hol og Beitir fékk hvorki meira né minna en 1.000 tonna hol. Þá hlýtur að hafa verið býsna þungt trollið hjá þeim Beitismönnum en þeir hafa örugglega reddað því ágætlega. Mér skilst að megnið af aflanum í þessu stóra holi hjá Beiti hafi komið á tveimur tímum eða svo. Veður í þessum túr hjá okkur var gott í restina en framan af var helvítis kaldi. Við klárum að landa seinni partinn í dag og þá verður haldið út á ný. Annars er kvótinn farinn að minnka og það gengur fljótt á hann þegar veiðin er eins og hún hefur verið síðustu daga,“ segir Þorkell.

Grétar Örn Sigfinnsson, rekstrarstjóri útgerðar Síldarvinnslunnar, segir að gera hafi þurft ýmsar ráðstafanir vegna veiðiskotsins mikla um helgina. Hann upplýsir að Börkur sé nú á leið til Færeyja með 2.100 tonn og Beitir sé á leið til Neskaupstaðar með 1.500 tonn. Samherjaskipin, sem eru í veiðisamstarfi með Síldarvinnsluskipunum, Vilhelm Þorsteinsson og Margrét, eru hins vegar að veiðum núna.