Sturla GK siglir frá Eyjum í gær. Ljósm. Guðmundur Alfreðsson.Sturla GK siglir frá Eyjum í gær.
Ljósm. Guðmundur Alfreðsson.
 
Í gærmorgun sigldi Sturla GK frá Vestmannaeyjum, en skipið hét áður Vestmannaey VE og undir lokin Smáey VE og hafði verið í Eyjaflotanum í eigu Bergs-Hugins frá árinu 2007. Þetta farsæla skip er nú í eigu Þorbjarnar hf. í Grindavík en ný Vestmannaey er gerð út af Bergi-Hugin. 
 
Það voru ýmisr sem komu niður á bryggju til að kveðja skipið og það var Magnús Kristinsson, fyrrverandi aðaleigandi og framkvæmdastjóri Bergs-Hugins, sem leysti landfestarnar. Síðan stóðu menn og fylgdust með skipinu sigla út úr höfninni og í gegnum huga margra hafa eflaust liðið ljúfar minningar sem tengjast því.
 
Skipið var smíðað í Póllandi fyrir Berg-Hugin og reyndist vel frá upphafi. Það hefur ávallt aflað vel og farið vel með mannskap. Sama er að segja um systurskipið, sem bar nafnið Bergey VE, en var selt til Grundarfjarðar á síðasta ári og heitir nú Runólfur SH. Bergey var einnig leyst af hólmi af nýju og glæsilegu skipi. Runólfur sigldi frá Eyjum hinn 30. september sl. og þá leysti Magnús Kristinsson einnig landfestarnar
 
Magnús Kristinsson segist sakna þessara góðu skipa sem hafi þjónað Eyjamönnum vel. „Þessi skip hafa reynst gífurlega vel og þau voru sannkallaður happafengur. Smíði þeirra tókst með ágætum og útgerð þeirra var alla tíð farsæl á meðan þau voru í eigu Bergs-Hugins. Ég hef fulla trú á því að skipin eigi eftir að reynast nýjum eigendum vel og ég vil bara óska nýju eigendunum til hamingju með þau. Þeir verða ekki sviknir af þessum skipum, um það er ég sannfærður,“ segir Magnús.
Magnús Kristinsson leysir landfestar Sturlu GK í gær þegar skipið kvaddi Eyjarnar. Ljósm. Guðmundur AlfreðssonMagnús Kristinsson leysir landfestar Sturlu GK í gær þegar skipið kvaddi Eyjarnar. Ljósm. Guðmundur AlfreðssonMagnús Kristinsson leysti einnig landfestar Runólfs SH þegar skipið kvaddi Eyjarnar 30. september sl.Magnús Kristinsson leysti einnig landfestar Runólfs SH þegar skipið kvaddi Eyjarnar 30. september sl.