Landað úr Gullver NS á Seyðisfirði. Ljósm. Ómar Bogasaon

Ísfisktogarinn Gullver NS landaði 55 tonnum á Seyðisfirði á föstudagsmorgun eftir stutta veiðiferð. Þórhallur Jónsson skipstjóri segir að veitt hafi verið í fínasta veðri á fimmtudaginn og það hafi verið góð tilbreyting. „Þetta var stuttur túr, einungis rúmir tveir sólarhringar á sjó. Upphaflega áttum við að landa á mánudag en það vantaði fisk í vinnsluna og því komum við fyrr til löndunar. Veiðin gekk vel og aflinn var nær eingöngu þorskur og ýsa. Við byrjuðum í Berufjarðarálnum en færðum okkur síðan í Litladýpið,“ segir Þórhallur.

Gullver hélt á ný til veiða um hádegi í gær.