
Yfirstandandi febrúarmánuður hefur aftur á móti verið erfiður veðurfarslega og hefur þess vegna ekki verið unnt að sækja á þau mið sem venjulega er veitt á um þetta leyti árs. Þrátt fyrir ótíðina hafa skipin þó fiskað svipað magn í mánuðinum og í fyrra eða 950 tonn. Að undanförnu hefur mest verið fiskað við Vestmannaeyjar og þá einkum hlémegin við eyjarnar. Síðan hefur verið skotist inn og landað í brælustoppum. Á þessum miðum fæst í reynd ekkert nema þorskur en reynt er að skjótast annað þegar færi gefst til að ná í aðrar tegundir. Sl. sunnudag og mánudag náðist til dæmis að kroppa í ufsa og karfa á miðum fyrir austan Vík.