Börkur NK að loðnuveiðum. Ljósm. Björn Steinbekk

Börkur NK kom til Neskaupstaðar í nótt með tæplega 1.000 tonn af loðnu sem fer til vinnslu í fiskiðjuveri Síldarvinnslunnar. Skipið staldraði einungis við í einar sex klukkustundir á miðunum. Heimasíðan ræddi við Hjörvar Hjálmarsson skipstjóra og spurði fyrst hvar aflinn hefði fengist. „Við fengum aflann í þremur köstum vestan við Hrollaugseyjar. Þarna var töluvert að sjá af loðnu og ég held að veiðin hjá skipunum sem þarna voru hafi almennt verið góð. Það er 40% kelling í aflanum og hrognafyllingin er um 14%. Farið er að frysta á Japan þegar hrognafyllingin er 15% og því er stutt í Japansloðnuna. Vonandi fæst slík loðna í næsta túr. Mér líst mjög vel á framhaldið, ekki síst vegna þess að það verður friður á miðunum næstu daga. Menn eru orðnir býsna þreyttir á brælunum sem hafa herjað á okkur að undanförnu,“ segir Hjörvar.