Gullver NS. Ljósm. Ómar BogasonGullver NS. Ljósm. Ómar BogasonÍsfisktogarinn Gullver kom til Seyðisfjarðar sl. mánudag og landaði þar 101 tonni. Aflinn var mest þorskur og karfi en einnig dálítið af ufsa. Rúnar L. Gunnarsson var skipstjóri í veiðiferðinni og segir hann að helsta fréttin sé sú að það hafi haldist þokkalegt veður allan tímann. „Það ber að fagna því að loksins fái menn gott veður til veiða, en veturinn hefur verið skelfilegur veðurfarslega. Við byrjuðum túrinn í Skeiðarárdýpi í þeirri von að fá þar djúpkarfa en það bar heldur lítinn árangur. Síðan var haldið austur eftir og endað á Fætinum í þorski. Það er búið að hægja verulega á skipinu vegna Covid-19. Það hefur hægt á öllu varðandi sölu á fiski og því er einnig hægt á veiðunum. Núna förum við einungis eina veiðiferð í viku og það eru þrír dagar í landi eftir hvern túr. Það er mikil breyting frá því sem verið hefur,“ segir Rúnar.
 
Gullver hélt á ný til veiða í gærkvöldi.