Barði NK siglir inn Norðfjörð í muggunni í morgun. Ljósm. Smári Geirsson

Barði NK kom til Neskaupstaðar í morgun með 1.225 tonn af loðnu. Heimasíðan ræddi við Þorkel Pétursson skipstjóra og spurði fyrst hvar veitt hefði verið. „Aflinn fékkst í tveimur köstum við Alviðru. Við fengum 160 tonn í fyrra kastinu og um 1.100 tonn í því síðara. Við vorum nálægt landi og það var töluvert að sjá þarna í fjörunni. Þarna voru þéttar lóðningar sem gáfu vel. Þetta er fallegasta loðna, um 38 stykki í kílóinu og 16% hrognafylling. Það er vinnslan sem stjórnar veiðunum. Við biðum á miðunum í um tvo daga áður en við gátum byrjað að veiða, en það var reyndar bræla annan daginn. Auðvitað vilja menn gera sem mest verðmæti úr loðnunni og þá þarf að veiða skynsamlega. Þetta var fyrsti nótatúr þessarar áhafnar á Barða og hann gekk eins og í sögu enda vanir kallar í hverju rúmi. Mér líst afskaplega vel á framhald loðnuvertíðarinnar. Það er einfaldlega ekki hægt að kvarta undan neinu,“ segir Þorkell.