Bergur VE. Ljósm. Guðmundur Alfreðsson

Ísfisktogarinn Bergur VE hélt til veiða sl. mánudag frá Eyjum að loknu þjóðhátíðarstoppi og var áhöfnin hress og glöð eftir góða helgi. Skipið kom síðan að landi í gær og landaði fullfermi af þorski og ýsu. Jón Valgeirsson skipstjóri segir að veiðiferðin hafi gengið hreint ljómandi vel. „Við byrjuðum á Pétursey og Vík og þar var þrumuþorskveiði. Aflinn var svolítið ýsublandaður. Síðan var haldið á Brekableyðuna og þar tekin ýsa. Við höldum út á ný í fyrramálið og þá er það karfi sem er á dagskránni. Við munum væntanlega byrja á Sneiðinni sunnan við Surt og þar ætti að vera djúpkarfi. Annars er verið að spá einhverjum bræluskít en við sjáum til með það,“ segir Jón.