Gullver NS kemur til löndunar. Ljósm. Ómar Bogason

Ísfisktogarinn Bergey VE landaði í Neskaupstað í gær og Gullver NS kom til löndunar á Seyðisfirði í morgun. Bæði skip komu með góðan afla eftir stuttar veiðiferðir. Steinþór Hálfdanarson, skipstjóri á Gullver, segir að þeir hafi einungis verið rúma tvo sólarhringa á veiðum í túrnum. „Aflinn hjá okkur var rúm 70 tonn og segja má að þetta sé allt þorskur. Þetta er fínn fiskur. Við tókum þetta allt á Glettinganesflakinu en þar hefur verið töluvert af fiski á ferðinni að undanförnu þó dálítið hafi dregið úr veiðinni undir lokin. Síðustu þrír róðrar hafa verið fínir og hafa einkennst af góðri veiði og tekið stuttan tíma. Það hafa fá skip verið á þessum slóðum því togaraflotinn er víst að mestu vestur á Dohrnbanka þar sem hefur verið hörkufiskirí. Í þessum túr voru bara fjögur skip að veiða þarna á Glettinganesflakinu. Nú ætlar áhöfnin að slappa svolítið af og það er jólahlaðborð á dagskránni í kvöld,“ sagði Steinþór.

Bergey VE landaði um 65 tonnum í Neskaupstað í gær eftir stuttan túr og hélt til veiða nánast strax að löndun lokinni. Heimasíðan ræddi við Jón Valgeirsson skipstjóra í morgun en þá var skipið að veiðum á Tangaflakinu í blíðu og þar var reitingsafli. „Við fengum aflann í síðasta túr á Glettinganesflakinu og þar var bara fín veiði. Aflinn var mest þorskur og síðan dálítil ýsa. Þetta var góður fiskur sem þarna fékkst og allt gekk bara eins og í sögu,“ sagði Jón.