Löndun hófst úr Barða NK strax og hann kom til hafnar í morgun.
Ljósm. Smári Geirsson

Barði NK kom í morgun með fyrsta farminn af íslenskri sumargotssíld til Neskaupstaðar á nýbyrjaðri vertíð. Afli skipsins var 1.320 tonn og fer hann til vinnslu í fiskiðjuveri Síldarvinnslunnar. Atli Rúnar Eysteinsson skipstjóri er bjartsýnn á vertíðina. „Þessi vertíð byrjar vel. Við fengum aflann í fimm holum í Kolluálnum og afli í hverju holi var 150-400 tonn. Það var dregið í 3-6 tíma. Hér er um að ræða fína millisíld og sýkingin sem hrjáð hefur þennan stofn undanfarin ár er ekki sjáanleg núna. Það var töluvert af síld að sjá þegar við yfirgáfum miðin þannig að þetta lítur bara býsna vel út,“ segir Atli Rúnar.

Síldarvinnsluskipin Börkur og Beitir héldu til síldveiða vestur fyrir land í gærkvöldi. Munu þau hafa samstarf um veiðarnar og er áætlað að annað þeirra verði komið með afla til Neskaupstaðar á mánudagsmorgun að afloknu helgarfríi í fiskiðjuverinu.