Börkur NK landaði fullfermi af norsk-íslenskri síld í síðustu viku en veiðin hefur verið heldur dræm síðustu daga.
Bjartur NK landaði um 85 tonnum af fiski í gær og var uppistaða aflans þorskur.  Bjartur NK heldur aftur til veiða í kvöld.
Barði NK er að veiðum og landar væntanlega á Norðfirði fimmtudaginn 19. júní.