Blængur NK

Í nóvember sl. tapaði frystitogarinn Blængur NK trolli á Kötluhrygg suður af landinu. Eftir að skipið missti veiðarfærið var reynt að ná því upp og voru tilraunir til þess gerðar í um einn og hálfan sólarhring. Á endanum brotnaði slæðan sem notuð var og þá var gefist upp að sinni en fyrir lá hvar trollið væri að finna. Ákvörðun var tekin um að láta smíða öflugri slæðu í Neskaupstað og síðastliðinn mánudag hófust Blængsmenn handa við að reyna að ná trollinu upp með nýju slæðunni. Sigurður Hörður Kristjánsson skipstjóri segir að takmarkaðrar bjartsýni hafi gætt í upphafi. „Við vissum að trollið var á erfiðum stað á 280 – 290 faðma dýpi og ég taldi að lítil von væri til þess að við næðum því. Engu að síður vildum við reyna okkar ítrasta. Í fyrsta lagi er Síldarvinnslan ábyrgt fyrirtæki á sviði umhverfismála og þess vegna var mikið lagt upp úr því að ná trollinu upp. Í öðru lagi vorum við afar ósáttir með að hafa tapað trollinu en um er að ræða dýrt veiðarfæri. Á mánudaginn vorum við komnir á staðinn í þokkalegu veðri og hófum að reyna að slæða veiðarfærið upp. Í fimmtu tilraun tókst það og það ríkti gleði um borð yfir árangursríku verkefni. Þarna kom veiðarfærið upp með öllum nemum og tilheyrandi búnaði þannig að það borgaði sig svo sannarlega að ná því upp auk hins umhverfislega ávinnings,“ segir Sigurður Hörður.

Þegar rætt var við Sigurð Hörð skipstjóra í gær var Blængur að veiðum á Mýragrunnshorni.