Alþjóðlega sjávarútvegssýningin IceFish var formlega opnuð á gær. Sýningin er í Fífunni í Kópavogi og stendur fram á föstudag. Margar áhugaverðar nýjungar eru kynntar á sýningunni og er hún í alla staði bæði forvitnileg og gagnleg fyrir þá sem starfa í greininni.
Starfsmenn Síldarvinnslunnar létu sig ekki vanta á sýninguna. Alls sóttu hana um 40 starfsmenn fyrirtækisins í gær. Það var Flugfélagið Ernir sem sá um að flytja flesta starfsmennina suður í gærmogun og síðan austur síðdegis.