Íslensk sumargotssíld er farin að veiðast. Ljósm. Guadalupe LaizÍslensk sumargotssíld er farin að veiðast.
Ljósm. Guadalupe Laiz
Bjarni Ólafsson AK er á leiðinni til Neskaupstaðar með 980 tonn af íslenskri sumargotssíld sem fékkst vestur af landinu. Aflinn fékkst í fjórum holum og var það stærsta 380 tonn eftir að togað hafði verið í þrjá og hálfan tíma. Bjarni er væntanlegur til Neskaupstaðar á morgun.
 
Beitir NK er kominn á miðin vestur af landinu og hóf veiðar í gærkvöldi.
 
Lokið var við að vinna norsk-íslenska síld úr Berki NK í gær og þar með er vinnslu á slíkri síld lokið í ár í fiskiðjuveri Síldarvinnslunnar. Frystiskipin munu hins vegar halda áfram að landa norsk-íslenskri síld í Neskaupstað; Hákon EA mun landa á morgun en Vilhelm Þorsteinsson EA er að veiðum.