Vetrarkyrrð á Seyðisfirði. Myndin er tekin sl. mánudagsmorgun. Gullver NS liggur framan við frystihúsið og Beitir NK framan við fiskimjölsverksmiðjuna. Ljósm. Ómar Bogason

Gullver NS kom til löndunar í heimahöfn á Seyðisfirði á mánudagsmorgun. Afli skipsins var 82 tonn, mest þorskur en einnig ýsa og ufsi. Þórhallur Jónsson segir að veitt hafi verið í blíðuveðri. „Veðrið var eins og best verður á kosið. Við byrjuðum í þorski og ýsu á Tangaflaki og að Fæti en síðan var haldið suðureftir í leit að ufsa. Við fengum ufsa í Berufjarðarál í eina nótt en síðan hvarf hann eins og dögg fyrir sólu. Við restuðum síðan í þorski á Gerpisflakinu. Líklega verður haldið til veiða á ný á föstudag og tekinn einn stuttur túr fyrir jólin,“ segir Þórhallur.