Fiskimjölsverksmiðja Síldarvinnslunnar í Neskaupstað. Ljósm. Smári Geirsson

Uppsjávarskip Síldarvinnslunnar hafa haldið til kolmunnaveiða í færeyskri lögsögu. Kolmunninn fer nær allur í mjöl- og lýsisframleiðslu og það er nóg af verkefnum framundan hjá fiskimjölsverksmiðjum Síldarvinnslunnar í Neskaupstað og á Seyðisfirði. Gert er ráð fyrir að verksmiðjurnar taki á móti yfir 100 þúsund tonnum af kolmunna á árinu og er það veruleg aukning frá því í fyrra. Hafþór Eiríksson, rekstrarstjóri fiskimjölsverksmiðjanna, segir að í fyrra hafi verksmiðjurnar samtals tekið á móti 77 þúsund tonnum af kolmunna – verksmiðjan í Neskaupstað tók á móti 49 þúsund tonnum og verksmiðjan á Seyðisfirði 28 þúsund tonnum. Nú í ár sé hins vegar gert ráð fyrir að þær taki á móti 107 þúsund tonnum og þar af 78 þúsund tonnum frá Síldarvinnsluskipum.

Fiskimjölsverksmiðja Síldarvinnslunnar á Seyðisfirði. Ljósm. Ómar Bogason

Hafþór segir að verksmiðjan í Neskaupstað sé tilbúin í kolmunnavertíðina og sama segir Eggert Ólafur Einarsson verksmiðjustjóri um verksmiðjuna á Seyðisfirði. „Hér er búið að sinna margvíslegu viðhaldi að undanförnu en nú er allt klárt. Við fengum tæplega tvö þúsund tonn af síld fyrir jólin og þá var sett í gang og allt prufukeyrt. Það var kærkomið að fá síldina og fá tækifæri til að keyra verksmiðjuna eftir lagfæringarnar,“ segir Eggert.