Vestmannaey VE leggur frá landi og heldur áleiðis til Vestmannaeyja að lokinni viðgerð í Reykjavík. Ljósm. Guðmundur Alfreðsson

Hinn 27. október sl. kom upp eldur í vélarúmi ísfisktogarans Vestmannaeyjar VE og urðu miklar skemmdir á annarri aðalvél skipsins. Nú hefur Vestmannaey verið til viðgerða í Reykjavík í um fjóra mánuði og loksins er viðgerðarvinnunni að ljúka. Guðmundur Alfreðsson útgerðarstjóri segir að mikill tími hafi farið í að bíða eftir varahlutum í vélina frá Japan og þar hafi kóvídfaraldurinn sett stórt strik í reikninginn. Annars segir útgerðarstjórinn að viðgerðin hafi gengið vel en þau fyrirtæki sem hafi borið hitann og þungann af vinnunni hafi verið vélsmiðjan Framtak og rafmagnsfyrirtækið Rafboði.

Heimasíðan ræddi við Birgi Þór Sverrisson skipstjóra á föstudag og spurði hvort menn væru ekki ánægðir með að viðgerð á skipinu væri lokið. „Jú, svo sannarlega. Við fórum í prufutúr í gær og það gekk allt eins og í sögu. Nú verður siglt frá Reykjavík áleiðis til Vestmannaeyja um eða eftir hádegi og síðan verður allt gert klárt fyrir veiðar. Ég vona að við getum haldið til veiða annað kvöld eða á sunnudag. Það þarf að hóa saman köllunum en margir þeirra hafa verið á öðrum skipum að undanförnu og aðrir hafa unnið fyrir útgerðina í Eyjum eða þá starfað við viðgerðirnar hér um borð. Þetta mun allt ganga vel og það er svo sannarlega tilhlökkunarefni að fara á sjóinn aftur enda vertíðin að fara að byrja. Nú er bara að vona en þessum látum í veðrinu fari að linna. Það er komið miklu meira en nóg af brælum,“ segir Birgir Þór.