Bergur VE kemur til löndunar í Eyjum. Ljósm. Guðmundur Alfreðsson

Ísfisktogararnir Bergur VE og Vestmannaey VE lönduðu í Vestmannaeyjum á miðvikudagskvöld. Þeir voru báðir nánast með fullfermi og var mest af ýsu í aflanum. Hvor togari landaði einnig um 20 tonnum í Neskaupstað á laugardaginn og biðu þar af sér brælu.

Heimasíðan ræddi við Ragnar Waage Pálmason, skipstjóra á Bergi, og spurði hann hvar hefði verið veitt. “Í þessum túr var víða farið meðal annars vegna veðurs. Við byrjuðum túrinn á Ingólfshöfða og þar var nuddveiði. Við urðum frá að hverfa þaðan vegna veðurs og þá var haldið austur fyrir land. Við lönduðum slatta í Neskaupstað og biðum þar þangað til veðrið skánaði. Síðan forum við út á Gerpisflak að leita að ýsu en þar var róleg veiði. Við héldum á Gula teppið og tókum þar eitt hol og þaðan í Berufjarðarálinn. Þar var ágæt dagveiði en lítið að hafa yfir nóttina. Keyrðum þaðan á Ingólfshöfðann og tókum einn sólarhring þar. Af Höfðanum var farið í Meðallandsbugtina og þar fengum við ágætis kokteil. Við enduðum svo á Pétursey þar sem tekið var eitt stutt hol áður en haldið var í land,” segir Ragnar.

Birgir Þór Sverrisson, skipstjóri á Vestmannaey, var spurður hvort Vestmannaey hefði veitt jafn víða og Bergur. “Já, við vorum á mjög svipuðu róli. Byrjuðum á Ingólfshöfða, lönduðum í Neskaupstað og eftir það var veitt á Gerpisflaki, Skrúðsgrunni, í Berufjarðarál, Breiðamerkurdýpi og Meðallandsbugt. Það var reitingur hér og þar en hvergi neinn verulegur kraftur í veiðinni,” segir Birgir Þór.

Bæði Bergur og Vestmannaey héldu á ný til veiða í gærkvöldi.