Ný Vestmannaey VE siglir inn Eyjafjörð. Ljósm. Þorgeir BaldurssonNý Vestmannaey VE siglir inn Eyjafjörð.
Ljósm. Þorgeir Baldursson
Hin nýja Vestmannaey hélt norður til Akureyrar hinn 6. ágúst sl. og munu þar starfsmenn Slippsins ganga frá millidekki skipsins. Áður höfðu starfsmenn Vélsmiðjunnar Þórs í Vestmannaeyjum gengið frá lestarfæribandinu um borð.
 
Millidekkið verður um þriðjungi stærra og að ýmsu leyti fullkomnara en var í gömlu Vestmannaey (núverandi Smáey). Þar verða meðal annars tveir stærðarflokkarar og krapakerfi frá KAPP. Þá er lögð áhersla á að vinnuaðstaða á dekkinu verði öll hin besta og líkamlegt álag á áhöfnina  í lágmarki.
 
Gert er ráð fyrir að hin nýja Vestmannaey geti hafið veiðar um miðjan september.