Niðurskorin gæðasíld tilbúin í maríneringu. Ljósm. Jón Gunnar Sigurjónsson

Nú er vinna við hina þekktu jólasíld Síldarvinnslunnar hafin. Þegar minnst er á jólasíldina verða margir spenntir og fá vatn í munninn. Það er Jón Gunnar Sigurjónsson, yfirverkstjóri í fiskiðjuverinu, sem stjórnar framleiðslunni á þessu sælgæti og hann segir að framleitt sé samkvæmt leyniuppskrift. „Framleiðsluferillinn tekur heilan mánuð eða meira. Fyrst er síldin flökuð og skorin í bita en til framleiðslunnar er valin úrvalssíld, fersk og nýveidd hér austur af landinu. Það er vart hægt að hugsa sér ferskari og betri síld. Þegar síldin hefur verið skorin er hún sett í kör þar sem hún marínerast um tíma. Þá er síldin sett í tunnur til maríneringar og í þeim er hún í um mánaðartíma. Að því loknu er síldin tilbúin til neyslu og góðgætinu pakkað í fötur. Það eru margir sem bíða spenntir eftir jólasíldinni okkar og ég þori að fullyrða að það verður enginn fyrir vonbrigðum. Hjá okkur í fiskiðjuverinu er alltaf mikil og góð stemmning þegar unnið er að framleiðslu jólasíldarinnar. Sérstaklega er skemmtilegt og mikið stuð þegar síldin er sett í föturnar,“ segir Jón Gunnar.

Síldin sett í tunnur en í þeim marínerast hún í um mánaðartíma.
Ljósm. Jón Gunnar Sigurjónsson