Kristina EA að landa frystum afurðum í frystigeymslur Síldarvinnslunnar. Ljósm. Þórhildur Eir SigurgeirsdóttirMiklar annir eru hjá starfsmönnum frystigeymsla Síldarvinnslunnar í Neskaupstað þessa dagana. Vinnsluskipin koma hvert á fætur öðru til löndunar og eru þau gjarnan með fullfermi af frystum makríl og síld. Barði NK landaði í gær 184 tonnum, Vilhelm Þorsteinsson EA er að landa 480 tonnum og á morgun er Hákon EA væntanlegur með um 700 tonn. Á laugardag er síðan stærsta fiskiskip Íslendinga, Kristina EA, væntanlegt með um eða yfir 2000 tonn. Á þessum fjórum dögum eru því vinnsluskip að landa tæplega 3400 tonnum af makríl í frystigeymslurnar og er það með mesta móti.

Fyrir utan makrílinn sem vinnsluskipin bera að landi er fiskiðjuver Síldarvinnslunnar að framleiða frystan makríl og með framleiðslu þess má áætla að frystigeymslurnar séu að taka á móti tæplega 5000 tonnum á þessum fjórum dögum.