
Ljósm. Sigurjón Mikael Jónuson
Bjarni Ólafsson AK hélt til kolmunnaveiða frá Neskaupstað sl föstudag. Haldið var rakleiðis út á Þórsbanka og þar verið að veiðum. Skipið er væntanlegt til Neskaupstaðar í dag með 950 tonn. Heimasíðan ræddi við Theodór Haraldsson skipstjóra og spurði hvernig túrinn hefði gengið. “Hann gekk að flestu leyti prýðisvel en veðrið var að stríða okkur framan af. Við fórum út á föstudag og það var skítabræla alveg fram á sunnudagskvöld en hins vegar var bongóblíða í gær. Í túrnum voru tekin fjögur hol en síðan þurftum við að halda til lands vegna bilunar í kapli. Dregið var frá sjö og upp í fimmtán tíma í holi og var aflinn frá 170 tonnum og upp í 330 tonn. Við munum landa í fiskimjölsverksmiðjuna í dag en hins vegar mun aflanum úr síðasta holinu, 170 tonnum, verða landað í fiskiðjuverið í fyrramálið. Það er semsagt ráðgert að frysta aflann úr síðasta holinu og prófa þannig hinn nýja búnað sem settur hefur verið upp í fiskiðjuverinu,” sagði Theodór.