Sigurður Álfgeir Sigurðarson. Ljósm. Smári Geirsson

Síldarvinnslan hefur ráðið Sigurð Álfgeir Sigurðarson, löggiltan endurskoðanda, til starfa hjá fyrirtækinu. Sigurður er ráðinn sem yfirmaður reikningshalds Síldarvinnslusamstæðunnar en hann mun meðal annars hafa umjón með árshlutauppgjörum og ársuppgjörum ásamt því að sinna margvíslegum öðrum störfum á fjármálasviði. Sífellt eru gerðar meiri kröfur til fyrirtækja um að þau hafi handbærar margvíslegar upplýsingar um starfsemi sína og mun Sigurður hafa umsjón með samantekt slíkra upplýsinga sem bæði eru fjárhagslegs eðlis og ófjárhagslegs.

Sigurður er Strandamaður að uppruna og alinn upp á bænum Kollafjarðarnesi til 15 ára aldurs. Grunnskóla sótti hann til Hólmavíkur. Hann lagði stund á framhaldsskólanám í Fjölbrautaskólanum á Sauðárkróki og síðar í Menntaskólanum á Egilsstöðum. Síðan lá leiðin í Háskóla Íslands og samhliða námi þar hóf hann að starfa hjá endurskoðunarfyrirtækinu Deloitte. Sigurður varð löggiltur endurskoðandi árið 2008. Hefur hann gengt starfi yfirmanns rekstrar Deloitte á Austurlandi frá árinu 2010 og þar til hann hóf störf hjá Síldarvinnslunni 1. september sl.

Heimasíðan ræddi stuttlega við Sigurð og spurði hvernig honum litist á að hefja störf hjá sjávarútvegsfyrirtæki. „Mér líst afskaplega vel á það. Ég ólst upp við sjósókn yfir sumartímann á Ströndunum og fékk snemma mikinn áhuga á öllu sem tengdist sjávarútvegi. Ég tók til dæmis pungapróf þegar ég var 13 ára gamall þó ég fengi ekki formleg réttindi fyrr en ég varð 18 ára. Ég hef átt bát í mörg ár og notið þess að fara á sjó á honum. Hér fyrir austan hef ég unnið að endurskoðun og ráðgjöf hjá sjávarútvegsfyrirtækjum og þekki því til þannig reksturs. Meðal annars hef ég sinnt störfum sem tengjast Síldarvinnslunni og verið í góðu sambandi við forsvarsmenn fyrirtækisins. Ég hef notið þess lengi að vinna með hæfileikaríku fólki og ég hlakka sannarlega til að sinna störfum með starfsfólki Síldarvinnslunnar,“ segir Sigurður Álfgeir.